[Kerfistilkynning] Tilkynningar frá kerfisstjóra

kerfi-admin at lists.snerpa.is kerfi-admin at lists.snerpa.is
Wed Oct 22 12:32:37 GMT 2003


Sælir Notendur.

Í gærkveldi voru sambönd Snerpu til Suðureyrar og Bolungarvíkur
í ólagi vegna DoS árásar sem var tilkominn af ormum sem smitast
milli véla.  Tókst að loka á þetta um 23:30 og unnið er að því
að láta sýkta aðila vita svo þetta endurtaki sig ekki.

Snerpa ehf hefur einnig tekið í notkun annan proxy þjón og
dreifist því álag á tvo þjóna í staðinn fyrir einn, einnig
kemur þetta sér vel ef annar bilar því þá getur hinn tekið við
og lágmarkar þetta hættu á truflunum vegna þess.

Við viljum svo gefa ykkur sem skráð eru á þennan lista smá
forskot á nýja þjónustu sem kynnt verður innan skamms á vef
Snerpu sem gerir notendum kleift að fylgjast með svartíma í
helstu netsamböndum, sjá nánar á vefslóðinni: 
http://network.it.is/cgi-bin/smokeping.cgi

Í hádegi á morgun verður svo prófaður nýr netbúnaður í
Stjórnsýsluhúsi sem miðast að því að geta stækkað sambandið
þangað og má því búast við truflunum á netsambandi þar og hjá
þeim aðilum sem tengdir eru í gegnum Stjórnsýsluhús.

Einnig höfum við enn bætt við spamvarnir í kjölfar aukins magns
af ruslpósti undanfarnar vikur og ætti ruslpóstur því að minnka
eitthvað.  Við viljum frekar stoppa of lítið af pósti heldur en
of mikið og því er alltaf eitthvað sem sleppur í gegn.


-- 
Ísak Ben.
Kerfisstjóri
http://www.snerpa.is





More information about the Kerfi mailing list