[Kerfistilkynning] xDSL Snerpu - Uppfærsla búnaðar og vefþjópns

Kerfistilkynningar Snerpu ehf. kerfi at listar.snerpa.is
Tue Nov 25 10:18:00 GMT 2014


Venga uppfærslu á vélbúnaði hjá Snerpu má búast við sambandstruflunum
yfir xDSL-sambönd (ADSL / /Ljósnet / Smartnet) miðvikudagsmorguninn 26. nóvember
á tímabilinu kl. 5:50 og 6:10.

Eftir útskiptingu á búnaði þarf endabúnaður notenda (router) að auðkenna sig á ný
og getur þurft að endurræsa hann ef hann fer ekki sjálfkrafa í auðkenningu.

Flestar útibúatengingar fyrirtækja verða ekki fyrir áhrifum af þessu.

Á sama tíma er fyrirhugað að stækka minni í einum af vefþjónum Snerpu og munu
vefir á honum verða óvirkir á sama tíma. Þetta á við um þá vefi sem ekki nota
Snerpil vefkerfið og eru flestir á Wordpress vefumsjónarkerfinu.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.





More information about the Kerfi mailing list