[Kerfistilkynning] uppfærsla vélbúnaðar

Kerfistilkynningar Snerpu ehf. kerfi at listar.snerpa.is
Thu Jan 15 14:00:11 GMT 2015


Vegna uppfærslu á vélbúnaði hjá Snerpu í símstöð á Ísafirði verður rof á Smartnet tengingum á Eyrinni og nokkrum
ADSL-tengingum í efri bænum aðfararnótt 16. janúar  frá kl. 01:00 og fram eftir nóttu vegna tengivinnu. Rofið hefur
áhrif á bæði Internet og sjónvarpsþjónustu auk þess sem símaþjónusta á viðkomandi fastlínum rofnar á sama tíma.

 

Eftir útskiptingu á búnaði þarf endabúnaður notenda (router) að auðkenna sig á ný

og getur þurft að endurræsa hann ef hann fer ekki sjálfkrafa í auðkenningu. Einnig er líklegt að þurfi að endurræsa
myndlykla. Er þá best að endurræsa router fyrst og þegar hann er farinn að sýna tengingu að endurræsa þá myndlykil.

 

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.





More information about the Kerfi mailing list