[Kerfistilkynning] Rof á auðkenningarþjóni aðfararnótt mánudags

Kerfistilkynningar Snerpu ehf. kerfi at listar.snerpa.is
Fri Apr 29 18:41:16 GMT 2016


Stutt rof verður á auðkenningarþjóni Snerpu aðfararnótt mánudagsins
2. maí vegna uppfærslu á vélbúnaði.

Áhrif af þessu eru að samabnd við Internet rofnar hjá öllum notendum
sem eru auðkenndir um þennan þjón sem eru allir sem tengjast um
Ljósnet, Smartnet og Ljósleiðara Snerpu.

Rofið verður á tímabilinu frá kl. 01-02 um nóttina.

Búist er við að rofið vari í innan við 5 mínútur. Þetta hefur ekki áhrif á
sjónvarpsþjónustu en verið getur að þurfi að endurræsa endabúnað hjá
einhverjum mnotendum ef hann kemur ekki aftur inn sjálfur. Skal þá
endurræsa beininn fyrst og þegar hann er kominn í gang skal endurræsa
þá myndlykla sem koma ekki inn um svipað leyti og beinir hefur lokið
ræsingu.

við biðjumst velvirðingar á því ónæði sem af þessu hlýst.

--
Björn Davíðsson - Framkvæmdastjóri - Snerpa Internet
bjossi at snerpa.is - 520-4018 - GSM 840-4008 - Isn: 2118*1391






More information about the Kerfi mailing list