[Kerfistilkynning] [LOKIÐ] Rof á auðkenningarþjóni aðfararnótt mánudags

Kerfistilkynningar Snerpu ehf. kerfi at listar.snerpa.is
Mon May 2 01:57:40 GMT 2016


Þessari vinnu er lokið.

Nokkrir notendur á Smartneti voru sambandslausir fram yfir áætlun  þeir
sem voru lengst sambandslausir vegna þessa voru úti í 15 mínútur.

Einnig eru nokkrir beinar sem ekki tengjast sjálfkrafa aftur og á að duga að
endurræsa þá.

----------------------
Stutt rof verður á auðkenningarþjóni Snerpu aðfararnótt mánudagsins 2. maí
vegna uppfærslu á vélbúnaði.

Áhrif af þessu eru að samband við Internet rofnar hjá öllum notendum sem eru
auðkenndir um þennan þjón sem eru allir sem tengjast um Ljósnet, Smartnet og
Ljósleiðara Snerpu.

Rofið verður á tímabilinu frá kl. 01-02 um nóttina.

Búist er við að rofið vari í innan við 5 mínútur. Þetta hefur ekki áhrif á
sjónvarpsþjónustu en verið getur að þurfi að endurræsa endabúnað hjá
einhverjum mnotendum ef hann kemur ekki aftur inn sjálfur. Skal þá endurræsa
beininn fyrst og þegar hann er kominn í gang skal endurræsa þá myndlykla sem
koma ekki inn um svipað leyti og beinir hefur lokið ræsingu.

við biðjumst velvirðingar á því ónæði sem af þessu hlýst.




More information about the Kerfi mailing list