[Kerfistilkynning] Stórt rof á Þingeyri í nótt

Kerfistilkynningar Snerpu ehf. kerfi at listar.snerpa.is
Tue Feb 11 13:22:31 GMT 2020


Vegna stækkana í burðarneti Vodafone er nauðsynlegt að framkvæma rof sem
getur varað í allt að 90 mínútur í nótt (einhvers staðar á tímabilinu frá kl. 01:00-06:00).

Rofið hefur þau áhrif að netnotendur á Þingeyri og dreifbýlinu í kring verða sambandslausir
á meðan og sjónvarp yfir nettengingar þar fellur einnig út. Þá rofnar einnig netsamband
við notendur á Bíldudal, Tálknafirði og Patreksfirði um leið en sjónvarpsþjónusta ætti þó
ekki að rofna á þeim stöðum.

Samband frá Snerpu til skiptistöðvar innanlandsumferðar í Háskóla Íslands mun einnig rofna
og sömuleiðis hluti aðal útlandasambands Snerpu til Amsterdam en umferð sem fer þar jafnan
um færist á varaleiðir og notendur verða væntanlega ekki varir við annað því fylgjandi en lítilsháttar
tafir á meðan umferð er að færast á milli sambanda við upphaf og lok rofsins.

Rofið hefur ekki áhrif á þá notendur sem tengjast um búnað Mílu.

Þetta er síðasti áfanginn í aðgerðum sem hófust fyrir jól á leiðinni Búðardalur -> Ísafjörður
og ætti ekki að þurfa fleiri rof í tengslum við þessa aðgerð.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem notendur kunna að verða fyrir vegna þessa.

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.snerpa.is/pipermail/kerfi/attachments/20200211/ce5137ea/attachment.html 


More information about the Kerfi mailing list