[Kerfistilkynning] Alvarlegir öryggisveikleikar í PHP

Kerfistilkynningar Snerpu ehf. kerfi at listar.snerpa.is
Thu Oct 22 11:33:58 GMT 2026


Í gær, 21. október, vakti CERT-IS athygli á tveimur alvarlegum
öryggisveikleikum í PHP-forritunarmálinu, sem knýr stóran hluta vefsíðna og
vefkerfa um allan heim. Rekstrarteymi Snerpu brást strax við.
Veikleikarnir, sem hafa fengið auðkennin CVE-2026-109618 og CVE-2026-109619,
eru metnir mjög alvarlegir (CVSS 9,2). Þeir geta gert óviðkomandi aðilum
kleift að keyra kóða á vefþjónum án nokkurrar auðkenningar og ná þannig til
allra vefþjóna sem keyra PHP og eru aðgengilegir frá internetinu, óháð því
hvaða vefkerfi er notað, til dæmis WordPress, Drupal, Joomla eða Nextcloud.
Sjá nánar á vef CERT-IS
https://cert.is/frettasafn/alvarlegir-veikleikar-i-php/

Um leið og viðvörunin barst hóf rekstrarteymi Snerpu að kortleggja þær
þjónustur sem gætu orðið fyrir áhrifum og greip til þeirra fyrirbyggjandi
ráðstafana sem CERT-IS og PHP mæltu með. PHP gaf út lagfæringu síðdegis í
gær og í kjölfarið voru vefþjónar Snerpu uppfærðir í lagfærðar útgáfur.
Meginhluti þjónusta Snerpu keyrir nú á uppfærðu PHP.
Á einum vefþjóni eru enn eldri vefsíður sem keyra á útgáfum af PHP sem ekki
eru lengur í stuðningi. Með öryggi viðskiptavina að leiðarljósi hefur verið
lokað tímabundið fyrir aðgang að þessum síðum frá internetinu á meðan unnið
er að uppfærslu þeirra. Slík lokun er fyrirbyggjandi öryggisráðstöfun og er
í samræmi við það sem CERT-IS mælir með þar til lagfæring er komin á.
Síðurnar verða opnaðar aftur jafnóðum og uppfærslu lýkur og verður eigendum
þeirra tilkynnt sérstaklega um stöðuna og næstu skref.
Við vöktum áfram kerfi okkar með tilliti til óeðlilegrar umferðar og höfum
engar vísbendingar um að veikleikarnir hafi verið nýttir gegn þjónustum
Snerpu.
Viðskiptavinir sem reka eigin vefþjóna með PHP, hvort sem er hjá Snerpu eða
annars staðar, eru hvattir til að uppfæra tafarlaust í nýjustu útgáfur
(8.5.12, 8.4.27, 8.3.36 eða 8.2.35) og endurræsa PHP-FPM eða vefþjóninn að
uppfærslu lokinni. Eldri útgáfur, 8.1 og eldri, eru ekki lengur í stuðningi
og þarf að uppfæra þær eða sækja lagfæringu frá viðkomandi dreifingaraðila.
Hafir þú spurningar um áhrif á þína þjónustu er velkomið að hafa samband við
þjónustuver Snerpu.





More information about the Kerfi mailing list