[Kerfistilkynning] Útfall/breytingar á Suðureyri í nótt

Kerfistilkynningar Snerpu ehf. kerfi at listar.snerpa.is
Mon Mar 7 10:44:22 GMT 2016


Í nótt (8.3 2016) þarf að flytja sambönd, sem búnaður okkar á Suðureyri
notast
við, yfir á nýja leið og rofna því öll sambönd á Smartnetinu þar á meðan.

Vinna hefst kl. 01:00 og má búast við að hún taki um 1-2 klst. Á meðan
dettur út bæði Internetsamband og IP-sjónvarp á Suðureyri.

Vinnan hefur ekki áhrif á sambönd í Botni í Súgandafirði eða annars staðar.

Komi samband ekki upp að breytingum loknum ætti að vera nægilegt að
endurræsa endabúnað. Endurræsa skal þá router fyrst og þegar hann er kominn
í gang skal endurræsa myndlykil ef hann er fyrir hendi.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem af þessu kunna að stafa.






More information about the Kerfi mailing list