[Kerfistilkynning] Breytingar á póstþjóni

Kerfistilkynningar Snerpu ehf. kerfi at listar.snerpa.is
Mon Mar 7 18:11:53 GMT 2016


Aðfaranótt miðvikudagsins 9.3 munum við fara út í umtalsverðar breytingar á
póstkerfinu hjá okkur, en þá munum við leggja af pósthúsið sem hefur
þjónustað okkur undanfarin ár og færa okkur yfir í nýrra kerfi.

Af þeim sökum gætu komið upp einhverjar truflanir á póstþjónustu en að mestu
ættu notendur ekki að verða varir við þessa breytingu.Undanfarna daga höfum
við verið að samkeyra pósthólfin á milli kerfa þannig að þegar nýja kerfið
er tekið í notkum ættu pósthólfin hjá notendum að líta eins út og á gamla
kerfinu, það er þó til sá möguleiki að þegar breytingin á sér stað að  þessi
samkeyrsla hafi ekki lokið sér af að fullu hjá einhverjum notendum og gæti
þá birst póstur á nýja staðnum sem notendur töldu sig hafa eytt.

Ef notendur lenda í vandræðum með að skrá sig inn eða telja sig sakna
einhvers af gamla staðnum verðum við með opið á beinan síma inn til okkar
sem er 5204025.

Við þessa breytingu breytist einnig vefviðmótið, en það gamla er barn síns
tíma og ræður illa við stór pósthólf.




More information about the Kerfi mailing list